[ forsíða | dagbókin | v 2.0 | færslusafn ]

Gefin fyrir drama þessi dama  



Ótrúlegt

2009-11-01 17:08  v2.0

Mér finnst ótrúlega magnað að fyrir einni viku síðan hafi þetta:
40 vikur

orðið að þessu:
Vegin og metin

Hún Árvök Elín okkar fæddist sumsé sunnudaginn 25. október kl 14:50 og var 13 merkur (3.265g) og 50 cm.
Fæðingin gekk svona þokkalega, eftir atvikum, en það er saga sem ég held ég segi síðar.
Látum myndirnar duga í bili.

Alveg glæný í fanginu á mömmu:
Árvök Elín

Að skoða pabba sinn:
Árvök Elín

Lítil fjölskylda:
Lítil fjölskylda

4 daga gömul:
4 daga

4 daga gömul - hliðarsvipur:
4 daga

Fleiri myndir munu rata inn á myndasíðuna annað veifið.


Sónar og fleira

2009-06-04 22:54  v2.0

Jæja, eigum við ekki að segja að það sé svosem tímabært að fara að setja einhverjar óléttufréttir hérna inn. Til þess var jú þessi hluti af síðunni settur upp.
Ég er sumsé komin rétt um 20 vikur og skyndilega orðin vel sjáanlega ólétt. Ég get svo svarið það að ég fór að sofa eitt kvöldið og það sá ekkert á mér og svo þegar ég vaknaði daginn eftir var komin dulítil kúla, eins og sjá má hér:

20 vikur.

Innihaldið í þessari bráðmyndarlegu kúlu má svo á hinn bóginn sjá hér:

Hliðarsvipurinn

eins og hrekkjavökuskraut.

Beint framan á lítið andlit.

Og þannig lítur það semsagt út.Allt gengur afspyrnu vel og ekkert nema gott af þessu öllu að frétta.
Eftir sex eða sjö vikur af viðbjóðslegri morgunógleði og sjóveikitöfluáti fór mér loks að líða betur og er orðin helvíti góð í dag, svona þannig séð.
Ég bíð samt enn spennt eftir því að fara að upplifa þennan fræga annan þriðjung meðgöngu, þar sem konur eru svo oft hressar og kátar og uppfullar af orku og ég veit ekki hvað og hvað. Ég er ennþá alveg hundþreytt alla tíð og ekki komin með fulla matarlyst aftur og get ekki sagt að ég sé ein af þeim konum sem blómstra á meðgöngunni, a.m.k. ekki enn sem komið er.
En þetta getur nú alveg komið með tímanum. Það eru jú aðrar 20 vikur eftir, þannig að það getur allt gerst.


Aðstæður og ástand

2009-01-15 19:59

Þessi pistill er búinn að vera að gerjast í hausnum á mér í dálítinn tíma en braust út núna áðan þegar mér var boðið að halda ræðu á mótmælafundi um helgina. Ég varð því miður að afþakka það, þar sem við hjónin erum á leið til höfuðborgarinnar þessa helgi, en mikið hefði ég nú verið til í slaginn hefði staðið öðruvísi á hjá okkur.
En ég set þetta semsagt á netið í bili og vona svo bara að mér verði einhvern tímann boðið það aftur að verða ræðumaður.

Við höfum það ansi gott, við Ragnar. Hann missti að vísu vinnuna sína hjá Sandblæstri og málmhúðun, en fékk nýja vinnu án vandkvæða og byrjar semsagt að vinna á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli um leið og tíma hans hjá Sandblæstrinum lýkur.
Við ráðum alveg ágætlega við afborganir af lánunum okkar og stöndum undir öllum okkar skuldbindingum - enn sem komið er.
Já, við höfum það gott og við vitum af því og erum þakklát fyrir það. En þó við getum staðið undir öllu okkar dóti þá svíður það að horfa upp á aðstæðurnar í þjóðfélaginu.
Fullt af fólki missir vinnu og finnur ekkert í staðinn, menn sjá fram á að missa húsnæðið og alla möguleika á að búa sér og sínum mannsæmandi líf.
Það er sárt að horfa upp á landið sitt fara svona. Ég hef svosem aldrei talið mig sérlega uppþembda af þjóðernisrembingi en ég átti ekki von á því að svona færi fyrir okkar litla landi og litlu þjóð. En þar liggur líklega vandinn. Við erum jú eftir allt saman lítið land og lítil þjóð og hefðum aldrei átt að henda okkur svona út í djúpu laugina með stóru strákunum.
Það hafa margir jarmað um það að nú sé ekki tíminn til að benda á sökudólga og kenna einhverjum um ástandið. Sjálfri finnst mér nú aldrei hafa verið betri eða réttari tími til að finna sökudólga og helst að hengja þá í hæsta gálga. Það mætti mín vegna taka upp gamla byltingarsiði og setja höfuð þeirra á stangir og láta þau veðrast af vindum öðrum til viðvörunar.
En það eru samt ekki útrásarvíkingar og Davíð Oddsson sem eru mér hugleiknastir um þessar mundir. Það eru ráðamenn þessarar þjóðar sem virðast ekki vera í nokkrum tengslum við grjótharðan raunveruleikann á skítkalda litla skerinu okkar. Ráðamennirnir sem gera ekki neitt. A.m.k. ekki neitt af viti, heldur bara hluti sem manni finnst að hafi það eitt að markmiði að gera ástandið enn verra. Eru Íslendingar nú skyndilega farnir að leika hlutverk Jobs hins margþjáða sem guð (í þessu tilviki sjálfstæðisflokkurinn) leyfði að lenti í endalausum raunum til þess eins að sanna það fyrir sjálfum sér og Satani hversu trúfastur Job væri? Það má svosem velta því fyrir sér þegar maður horfir upp á ráðamenn skera niður heilbrigðiskerfið og menntakerfið til að ná fram nauðsynlegum sparnaði, einmitt núna þegar þjóðin hefur aldrei þurft eins mikið á því að halda að hafa þessa máttarstólpa sterka og trausta.
Á sama tíma er ekki hægt að skera niður svo nokkru nemi í utanríkisráðuneytinu og enn er haldið úti sendiherrum í óskaplega fínum sendiherrabústöðum á víð og dreif um heiminn.
Ætli þetta sé gert í þeim tilgangi einum að komast að því hversu mikið við látum yfir okkur ganga, hversu lengi við munum halda áfram að kjósa sömu gömlu jálkana til að stýra okkur?

Ég er svosem enginn stjórnmálafræðingur eða stjórnspekingur, en ég hefði freistast til að halda að nú þyrfti að halda öðruvísi á spilunum.
Ég myndi t.d. vilja sjá stutt verulega við bakið á innlendri framleiðslu, og þá fyrst og fremst matvælaframleiðslu. Mætti ekki til dæmis leggja niður öll aukagjöld af innlendum matvælum og reyna að koma okkur á þann kjöl að við getum séð fyrir okkur sjálf og að venjulegir neytendur geti keypt íslenska framleiðslu í búðum án þess að borga fyrir það stórfé?
Mætti ekki líka því sem næst leggja niður utanríkisráðuneytið, a.m.k. í bili? Við eigum jú við innanlandskrísu að stríða núna, þó hún sé vissulega hluti af mun stærra vandamáli, og er það þá ekki kjörinn tími til að leggja þetta endalausa útlandabrölt á hilluna í bili og rækta okkar eigin garð? Kalla heim sendiherrana og ráða konsúla í staðinn. Smáþjóðir hafa nú gjarnan þann hátinn á, ef mér skjátlast ekki því meir.
Í stað þess að skera niður fjárframlög til heilbrigðis- og menntakerfis myndi ég vilja sjá meiri peningum varið til að styrkja þá starfsemi. Það er vitað mál að atvinnuleysi hefur aukist gríðarlega nú þegar og mun halda því áfram um ófyrirséða framtíð og þegar málin standa þannig þá er tvennt sem er alveg ljóst; a) fólk leitar aftur í skóla, í og með til að hafa eitthvað fyrir stafni, og b) það verða margir sem munu eiga mjög erfitt á næstunni og þurfa að leita hjálpar hjá geðdeildum spítalanna, sem nú er verið að loka alveg hægri vinstri. Er það til marks um bjánahátt minn að ég skuli ekki sjá hvernig þetta á að geta gengið upp, eða er eitthvað athugavert við þetta allt saman?

Um daginn átti ég áhugaverðar samræður við gamlan mann sem setti fram þá hugmynd að íslenska ríkið ætti að stofna nýjan banka sem myndi eingöngu lána peninga til fyrirtækja til að þau gæti haldið úti rekstri og þyrftu ekki að sigla í gjaldþrot. Hann vildi meina það, þessi maður, að fyrst íslenska krónan væri hvorteðer orðin nær fullkomlega verðlaus úti í heimi þá væri okkur nær að taka upp miklu lokaðra hagkerfi, þar sem við gætum í raun ákveðið það sjálf hversu mikils virði krónan væri okkur. Þessi ríkisbanki gæti þá haldið flæði krónunnar gangandi í atvinnulífinu og smátt og smátt væri hægt að koma lífi í okkur aftur.
Ég hef hugsað töluvert um það sem hann sagði og ég verð að viðurkenna það að mér finnst ég alveg sjá vitglóru í þessu. Ég hef reyndar enga þekkingu a því hvernig innviðir viðskiptalífsins virka, og ég veit svoem ekki nema mér finnist það bara meðmæli með mínum karakter í dag, en hitt veit ég að það er ekki vel komið fyrir okkur þegar það er meira vit í því sem hálfelliær gamalmenni segja heldur en öllu sem ráðamenn íslensku þjóðarinnar hafa látið út úr sér í lengri tíma.


Jólagjafir

2009-01-02 00:31

Ok, þetta er nú aðallega nóta handa sjálfri mér svo ég geti munað hvað við fengum í jólagjöf og frá hverjum:
Frá foreldrum mínum fengum við viðhafnarútgáfuna af Bangsímon sem kom út fyrir jólin.
Frá foreldrum Ragnars: Ragnar fékk peysu og ég fékk risavaxið baðhandklæði og baðvörusett.
Frá Elínu, Tomma, Kalla og Tedda fengum við drykkjuspil og inniskó.
Frá Kidda og Viggu, konfektkassa, ilmkerti og spilastokk.
Frá Steina og Guðrúnu, konfektkassa.
Frá Silju og Dóra, Jarðið okkur e. Hugleik.
Frá Ragnari fékk ég málarasett, þ.e. striga á blindramma, tvo pensla, málaraspjald og pakka af akrýllitum.
Ég gaf honum hins vegar Dark Knight myndina og 400 facts about Chuck Norris bók.
Og það held ég að sé allt.

Uppfært 7. janúar
Auðvitað gleymdi ég a.m.k. einni gjöf og svo bættist líka ein við.
Frá Unni fengum við Mirrormask myndina.
Og Lalli mágur minn (og þá væntanlega Steinunn líka) gáfu okkur heilar þrjár rjúpur sem hjúfra sig saman í frystinum hjá okkur og bíða þess dags með eftirvæntingu að við hjónakornin höldum okkur veislu.

Kjóll og myndir

2008-11-18 21:47

Hér er sumsé nýi súperfíni kjóllinn minn sem var settur á fjárhagsáætlun heimilisins vegna þess eins að hann er alltof ótrúlega flottur til að það geti einhver önnur kona fengið að kaupa hann. Hann var nýttur á árshátíð hjá Ragnari um helgina og verður svo jóla-, áramóta- og þorrablótskjóll að auki.
Dress

Fleiri nýlegar (og ekki svo nýlegar) myndir má svo sjá hér ef menn hafa áhuga á því. Þar er t.d. að finna myndir frá sirkusferð okkar Ragnars í sumar og e-ð fleira.

Ótrúlega fallegt

2008-10-22 15:23


Loksins, loksins

2008-10-20 16:33

er ég búin að álpast til að setja brúðkaupsmyndir inn á flickr. Þið getið alltsvo séð þær hér ef þið hafið áhuga.

Uppfært 23.10.2008
Best að smella einni af myndunum inn, svona til að gefa nú smá sýnishorn.
Happiness

Hjálparbeiðni

2008-10-13 21:56

Ok, það er best að athuga hvort internetið getur nokkuð hjálpað mér.
Þannig er mál með vexti að mig vantar kökudunka. Helst bara mackintosh dalla, heldur af stærri gerðinni. Er nokkur þarna úti, af því örfáa fólki sem enn les þessa síðu, sem má missa svoleiðis gripi?

Uppfært 20.10.08
Hah, haldiði ekki bara að ég hafi fundið svona líka ágæta dalla í Hagkaup. Málunum er sumsé reddað.

Uppskrift handa Silju

2008-10-01 23:05

Ekki svo að skilja, þið hin megið svosem alveg nota hana líka ef þið viljið.
Þetta er sumsé hið megafrábæra meðlæti sem ég var að segja þér frá Silja mín.

Sætar kornflekskartöflur:
3-4 stk sætar kartöflur (3 bollar af mauki)
1 tsk vanilludropar
1/2 msk salt
1/2 bolli sykur
1/2 bolli smjör
1 tsk lyftiduft
1 stk egg
Bakið kartöflurnar við 180°C þar til þær eru mjúkar í gegn. Skerið þær í tvennt og skafið innan úr þeim. Blandið öllum hráefnunum saman og setjið í smurt eldfast mót (ath. ekki setja of mikið í mótið því maukið lyftir sér). Bakið við 170°C í 20 mínútur, hækkið þá hitann í 200°C og útbúið kornflekshjúp.
Kornflekshjúpur
1 msk smjör
1/4 bolli púðursykur
1 1/4 bolli kornflakes
1/2 bolli heslihnetur
Blandið söxuðum heslihnetum, púðursykri og kornfleksi saman við bráðið smjörið. Setið yfir kartöflumaukið og bakið svo við 200°C í 10 mínútur.
Leiki einhver vafi á hvernig bollaeiningarnar virka þá er einn bolli = 2,4 desilítrar.
Þetta er alveg óheyrilega ljúffengt og verulega gaman að hafa þetta á borðum við hátíðleg tækifæri.
Verði ykkur að góðu.

Pólitískt spaug

2008-09-25 16:39

Þetta finnst mér ansi hreint fyndið:

<param value="http://widgets.nbc.com/o/4727a250e66f9723/48dac01629b8af0d/48d7a8693c5fc109/4081e0da/logoLink/http%3a%2f%2fwww.nbc.com%3fvty%602fromWidget_Video/clipID/669582/siteDomain/nbc/graboffUrl/http%3a%2f%2fvideo.nbcuni.com%2fwidgetxml%2fsingleClip1%2fnbcshare.png/siteShow/nbc.com/moreLikeLink/http%3a%2f%2fwww.nbc.com%2fChuck%2fvideo%2f%23mea%602157082/textFieldColor/FFFFFF/videoPlayerSkin/http%3a%2f%2fvideo.nbcuni.com%2fwidgetxml%2fsingleClip1%2fskin14.swf/showID/61/omniture/NBC%2cprod/bgndUrl/http%3a%2f%2fvideo.nbcuni.com%2fwidgetxml%2fsingleClip1%2fbg.swf/configID/1105/configxmlPath/http%3a%2f%2fvideo.nbcuni.com%2fwidgetxml%2fsingleClip1%2fsingleclip_omniConfig.xml/wName/NBC+Video/video_title/Saturday+Night+Live+-+McCain+Approves+Open?storeInPid=true" name="movie"/><param value="transparent" name="wmode"/><param value="all" name="allowNetworking"/><param value="always" name="allowScriptAccess"/>

Klukk

2008-09-22 17:13

Verður maður ekki endrum og sinnum að spila með í svonalöguðu? Læt mig hafa það fyrir hana Kötlu.

4 störf sem ég hef unnið
Skrifstofustúlka hjá STEFi
Gengilbeina á Þremur frökkum
Blaðamaður a vikublaðinu Austra
Prófarkalesari hjá Bændablaðinu

4 bíómyndir
Stardust
Labyrinth
Fight Club
Still Crazy

4 staðir sem ég hef búið á
Jökuldalur
Grettisgata
Rauðarárstígur
Hafnarstræti á Akureyri

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar
Swingtown
Family Guy
Robot Chicken
30 Rock

4 síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg
Facebook
Flickr
Búseti á Norðurlandi
Yahoo

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum
París
Prag
London
Jökuldalur

4 matarkyns
Saltað hrossakjöt
Súkkulaði
Sætar kartöflur
Sushi

4 bækur
The Distance Between Us - Maggie O'Farrell
American Gods - Neil Gaiman
Í fjarveru trjáa - Ingunn Snædal
The Autumn Castle - Kim Wilkins

4 óskastaðir akkúrat núna
Rúmið mitt
París
Sunny Gardens Road, London
Flugsæti á Saga Class á leið til einhverrar skemmtilegrar borgar

4 bloggarar sem ég skora á að svara þessari könnun
Æ, mér dettur ekkert í hug. Þið verðið bara að taka þetta klukk til ykkar ef þið viljið.
Eða jú kannski, Silja. Og Unnur, ef hún hefur ekkert að gera.


Örfáir þriðjudagsmolar

2008-09-16 21:15

Hlutir sem skemmta mér á internetinu í dag:

Í tilefni af því að það er farið að styttast í hrekkjavöku þá eru hérna nokkrir verulega athyglisverðir búningar fyrir "dömur". Athyglisvert hvernig halloweenbúningar fyrir konur eru alltaf eins og vinnuföt fyrir strippara.

Ég viðurkenni, ég hló dálítið að þessu:
Witherspoon
Það þarf ekki mikið til að skemmta mér í dag.


Símaleysi

2008-08-20 22:23

Gleymdi að setja þetta hérna inn í dag, en betra seint en aldrei. Ég er semsagt ekki með símann minn við höndina og verð það ekki fyrr en á föstudag (í fyrsta lagi).
Þannig að ef þið þurfið að ná í mig þá er það bara svekk fyrir ykkur. Annars getiði svosem líka sent mér email.


User:
Pass:
Ef þú biður fallega geturðu fengið lykilorð til að sjá þá hluta dagbókarinnar sem ekki eru opnir almenningi.


Ótrúlegt
Sónar og fleira
Aðstæður og ástand
Jólagjafir
Kjóll og myndir
Ótrúlega fallegt
Loksins, loksins
Hjálparbeiðni
Uppskrift handa Silju
Pólitískt spaug
Klukk
Örfáir þriðjudagsmolar
Símaleysi
Brúðkaup
Vika
Bækur, bækur, bækur!
Klipping
Með æluna í kokinu!
Ekki alveg jafn svöl og Morgan Kane
Nei takk...
Stjáni?
Konudagur
Kræst!
Eldhúsgyðja?
Nöldur, nöldur
Þangað og aftur til baka
Einu sinni var agnarlítil stúlka...
Bakstur = slysagildra?



Addi
Annie
Arngrímur Vídalín
Bára
Bjarney
Bjarni
Borgar
Finnur
Halldór
Hel
Hildur
Ingunn Bylgja o.fl.
Kári
Lora
Nina
Silja
Stefán Bogi
Sunna
Unnur

Mínar myndir á www.flickr.com



Urður Snædal - urdur@klaki.net