[ forsíða | dagbókin | v 2.0 | færslusafn ]

Gefin fyrir drama þessi dama - 2008-01-01 01:16



Einu sinni var agnarlítil stúlka...

2008-01-01 01:16

...með ljósa lokka og augu sem voru gráblá eins og himinninn á óveðursdegi.
Stúlkunni litlu þótti gamlársdagur sérstaklega merkilegur dagur og hún trúði því af allri þeirri barnslegu einlægni sem eitt barnshjarta getur rúmað að flugeldunum væri skotið upp á áramótunum til að búa til nýjar stjörnur. Þær sem fyrir voru á himninum virtust oft svo þreytulegar og daprar á þessum tíma að það leit út fyrir að þyrfti að endurnýja í flotanum.
Svo litla stúlkan faðmaði hundana á bænum sínum um hver áramót og reyndi að segja þeim að þeir þyrftu ekki að vera hræddir, það væri bara verið að gera nýjar stjörnur á næturhimininn svo við hefðum eitthvað að horfa á í myrkrinu.
Og á hverju ári brosti hún við skellunum og smellunum og sprengjunum sem þutu um himinhvolfið og naut þeirrar fullvissu að himinninn yrði ennþá fullur af skærum og fallegum stjörnum á nýju ári.
í dag er þessi agnarlitla stúlka orðin heldur stærri og veit fullvel hvernig þetta gengur allt fyrir sig með stjörnur og flugelda og öll þessi læti.
Samt brosir hún enn við hávaðanum og öllum þessum dásamlega fallega ljósum og enn hugsar hún með sér innst inni að þarna verði nú heldur betur til stjörnudýrð fyrir nýárshimininn.
Og hún óskar öllum sínum ástkæru vinum gleðilegs árs og alls hins besta á þessu ári sem nú er rétt gengið í garð. Megi allt ganga ykkur í haginn og nýja árið verða fullt af ást og gleði og hlátri og birtu.


User:
Pass:
Ef þú biður fallega geturðu fengið lykilorð til að sjá þá hluta dagbókarinnar sem ekki eru opnir almenningi.


Ótrúlegt
Sónar og fleira
Aðstæður og ástand
Jólagjafir
Kjóll og myndir
Ótrúlega fallegt
Loksins, loksins
Hjálparbeiðni
Uppskrift handa Silju
Pólitískt spaug
Klukk
Örfáir þriðjudagsmolar
Símaleysi
Brúðkaup
Vika
Bækur, bækur, bækur!
Klipping
Með æluna í kokinu!
Ekki alveg jafn svöl og Morgan Kane
Nei takk...
Stjáni?
Konudagur
Kræst!
Eldhúsgyðja?
Nöldur, nöldur
Þangað og aftur til baka
Einu sinni var agnarlítil stúlka...
Bakstur = slysagildra?



Addi
Anna Magda
Annie
Arngrímur Vídalín
Bára
Bjarney
Bjarni
Borgar
Finnur
Halldór
Hel
Hildur
Ingunn Bylgja o.fl.
Jón Örn
Kári
Kristín Svava
Lora
Nina
Ringa
Silja
Stefán Bogi
Sunna
Unnur

Mínar myndir á www.flickr.com



Urður Snædal - urdur@klaki.net