[ forsíða | dagbókin | v 2.0 | færslusafn ]

Gefin fyrir drama þessi dama - 2008-05-09 21:26



Bækur, bækur, bækur!

2008-05-09 21:26

Mér finnst það svolítið, eða eiginlega bara töluvert, dapurlegt að loksins þegar ég er komin í vinnu sem mér finnst algjörlega frábær þá er það bara tímabundið ástand.
Ég er semsagt að leysa af einn af bókavörðunum á Amtsbókasafni Akureyrar og ég gæti ekki verið ánægðari með þetta starf.
Mér finnst þetta svo skemmtilegt að það er bara eins og hver annar bónus að ég skuli fá borgað fyrir þetta.
Það er ánægjulegt að hjálpa fólki að finna réttar bækur og grafa upp upplýsingar þegar nauðsyn krefur. Gaman líka að spjalla við fólkið, bæði viðskiptavini og starfsfólk. Fínt líka að þurfa ekkert að borga fyrir fá lánaðar bíómyndir.
En best er þó lyktin af bókunum sem fyllir vitin meðan maður raðar þeim í hillurnar. Mér finnst það skemmtilegast af öllu, að vera á vakt á þeim stöðum sem ég fæ að raða bókum. Taka þær upp, klappa þeim og finna rétta staðinn þeirra. Inni í höfðinu á mér tala ég við þær, og sjálfa mig, á meðan; "Hundabók já, þú átt að vera í 600 hillunni. 630 og e-ð, er það ekki? Jújú, passar, 636. 7 á kjalmiða. Best að koma þér þangað greyið, illa farin sem þú ert." O.s.frv, alveg ad infinitum.
Í morgun eyddi ég 3 klukkutímum í að raða bókum og hafði ekki minnstu hugmynd um hvað tíminn flaug frá mér, þannig að ég varð steinhissa þegar Þórunn kom að taka við af mér í hádeginu. Það var svosem sök sér, en svo steingleymdi ég mér náttúrulega aftur og fór ekki í kaffi fyrr en tíu mínútum of seint, og þá reyndar bara af því að Doddi kom og minnti mig á að hundskast í pásu.
Mergurinn málsins er semsagt sá að ég elska vinnuna mína. En kaldhæðni örlaganna er söm við sig og því fæ ég bara að vera þarna út júní. Hundfúlt sem það nú er.
Kannski maður þurfi að fara að læra bókasafns- og upplýsingafræði til að auka líkurnar á að geta fengið varanlega vinnu á svona frábærum stað.

En svo er reyndar eitt annað sem hvílir á mér í sambandi við bókatengd mál. Hvar í veröldinni eru bækurnar mínar eftir Maggie O'Farrell? Ég á fimm bækur eftir hana en það er bara ein hérna uppi í hillu. Hvar geta hinar verið? Hefur einhver fengið þær lánaðar hjá mér?


User:
Pass:
Ef þú biður fallega geturðu fengið lykilorð til að sjá þá hluta dagbókarinnar sem ekki eru opnir almenningi.


Ótrúlegt
Sónar og fleira
Aðstæður og ástand
Jólagjafir
Kjóll og myndir
Ótrúlega fallegt
Loksins, loksins
Hjálparbeiðni
Uppskrift handa Silju
Pólitískt spaug
Klukk
Örfáir þriðjudagsmolar
Símaleysi
Brúðkaup
Vika
Bækur, bækur, bækur!
Klipping
Með æluna í kokinu!
Ekki alveg jafn svöl og Morgan Kane
Nei takk...
Stjáni?
Konudagur
Kræst!
Eldhúsgyðja?
Nöldur, nöldur
Þangað og aftur til baka
Einu sinni var agnarlítil stúlka...
Bakstur = slysagildra?



Addi
Annie
Arngrímur Vídalín
Bára
Bjarney
Bjarni
Borgar
Finnur
Halldór
Hel
Hildur
Ingunn Bylgja o.fl.
Kári
Lora
Nina
Silja
Stefán Bogi
Sunna
Unnur

Mínar myndir á www.flickr.com



Urður Snædal - urdur@klaki.net