Vika
2008-08-01 17:04
Eftir nákvæmlega eina viku verð ég orðin gift kona. Það er alveg ferlega fullorðið.
Næsta föstudag verðum við Ragnar semsagt gefin saman af Jónínu Berg Þórsnessgoða frammi fyrir rétt u.þ.b. 100 gestum. Mér finnst það dálítið magnað og líka alveg hreint frábært. Loksins er að verða komið að þessu.
Því miður lítur veðurspáin ekki alveg nógu vel út eins og sakir standa, en það getur nú ýmislegt breyst á heilli viku. Svo treysti ég líka á það að hann Þorsteinn afi heitinn sjái okkur fyrir góðviðri á brúðkaupsdaginn. Það er nú einu sinni afmælisdagurinn hans.
Annars gengur þetta bara ágætlega allt saman. Kjötið sem á að grilla er að vísu enn á fæti heima á Skjöldólfsstöðum, en það stendur nú allt til bóta. Við vorum farin að sjá fram á að þurfa að byrja athöfnina á dýrafórn, en það sleppur blessunarlega fyrir horn.
Svo þarf ég bara að fara að hella mér í baksturinn núna upp úr helginni, þegar sextugsafmæli tengdamömmu verður afstaðið og ég get fengið að henda í frysti hjá henni. Fyrst ég er loksins búin að finna almennileg muffinsform (hver hefði trúað því að það gæti verið svona erfitt) þá stendur svosem ekkert í vegi fyrir framkvæmdum nema þá helst almenn leti og of hár lofthiti. Mér er of heitt til að nenna að gera nokkurn skapaðan hlut. Enætli ég verði ekki a.m.k. að fara að prófa þessa dásemdaruppskrift að súkkulaðimuffins með rjómaostafyllingu. Það er bara vonandi að það sé e-ð varið í þetta. Ojæja, ef ekki þá finn ég bara e-ð annað sniðugt og þægilegt.
Ég hef fulla trú á því að þetta verði alveg hreint afbragðs brúðkaup. Það ætlar fullt af fólki að mæta og þetta hefur alla burði til að verða alveg stórskemmtilegt.