[ forsíða | dagbókin | v 2.0 | færslusafn ]

Gefin fyrir drama þessi dama - 2008-08-14 22:51



Brúðkaup

2008-08-14 22:51

Jæja, þá er maður víst genginn í hnapphelduna og það er bara assgoti ágætt. Ég myndi nú reyndar freistast til að halda að þetta væri allt saman alveg nákvæmlega eins og meðan við vorum bara sambýlisfólk, með þó þeirri heiðarlegu undantekningu að nú hef ég tilhneigingu til að kalla Ragnar eiginmann minn og flissa ógurlega því mér þykir það alveg verulega fyndið að eiga svoleiðis.
Brúðkaupsdagurinn okkar var afskaplega bjartur og fagur og í alla staði vel heppnaður. Maturinn var dásamlegur, vínið feykinóg og gestirnir hressir og skemmtilegir og allir skemmtu sér vel.
Við fengum fullt, fullt, fullt af góðum gjöfum og sjáum nánast fram á að þurfa að stækka við okkur húsnæðið til að koma þessu öllu fyrir. Vonandi sleppur þetta samt allt hérna inn með hagræðingu og tiltekt.
Við viljum svo bara þakka alveg hreint kærlega fyrir okkur, bæði fyrir gjafaflóðið en ekki síður því ágæta fólki sem sá sér fært að gleðjast með okkur. Í tilefni af þessu öllu ætla ég að smella snöggvast inn tveimur myndum sem ég nappaði frá Elínu mágkonu minni. Það koma svo fleiri myndir, bæði hér á síðuna og á Flickr-síðuna mína þegar við fáum þær frá ljósmyndaranum.

Brúðkaup.

Brúðkaup.



User:
Pass:
Ef þú biður fallega geturðu fengið lykilorð til að sjá þá hluta dagbókarinnar sem ekki eru opnir almenningi.


Ótrúlegt
Sónar og fleira
Aðstæður og ástand
Jólagjafir
Kjóll og myndir
Ótrúlega fallegt
Loksins, loksins
Hjálparbeiðni
Uppskrift handa Silju
Pólitískt spaug
Klukk
Örfáir þriðjudagsmolar
Símaleysi
Brúðkaup
Vika
Bækur, bækur, bækur!
Klipping
Með æluna í kokinu!
Ekki alveg jafn svöl og Morgan Kane
Nei takk...
Stjáni?
Konudagur
Kræst!
Eldhúsgyðja?
Nöldur, nöldur
Þangað og aftur til baka
Einu sinni var agnarlítil stúlka...
Bakstur = slysagildra?



Addi
Annie
Arngrímur Vídalín
Bára
Bjarney
Bjarni
Borgar
Finnur
Halldór
Hel
Hildur
Ingunn Bylgja o.fl.
Kári
Lora
Nina
Silja
Stefán Bogi
Sunna
Unnur

Mínar myndir á www.flickr.com



Urður Snædal - urdur@klaki.net