Sónar og fleira
2009-06-04 22:54 v2.0
Ég er sumsé komin rétt um 20 vikur og skyndilega orðin vel sjáanlega ólétt. Ég get svo svarið það að ég fór að sofa eitt kvöldið og það sá ekkert á mér og svo þegar ég vaknaði daginn eftir var komin dulítil kúla, eins og sjá má hér:
.
Innihaldið í þessari bráðmyndarlegu kúlu má svo á hinn bóginn sjá hér:

Og þannig lítur það semsagt út.Allt gengur afspyrnu vel og ekkert nema gott af þessu öllu að frétta.
Eftir sex eða sjö vikur af viðbjóðslegri morgunógleði og sjóveikitöfluáti fór mér loks að líða betur og er orðin helvíti góð í dag, svona þannig séð.
Ég bíð samt enn spennt eftir því að fara að upplifa þennan fræga annan þriðjung meðgöngu, þar sem konur eru svo oft hressar og kátar og uppfullar af orku og ég veit ekki hvað og hvað. Ég er ennþá alveg hundþreytt alla tíð og ekki komin með fulla matarlyst aftur og get ekki sagt að ég sé ein af þeim konum sem blómstra á meðgöngunni, a.m.k. ekki enn sem komið er.
En þetta getur nú alveg komið með tímanum. Það eru jú aðrar 20 vikur eftir, þannig að það getur allt gerst.